Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   lau 04. apríl 2026 05:55
Kári Snorrason
Ísland í dag - Bestu deildar liðin mæta til leiks
Frá viðureign Fram og Víkings síðasta sumar.
Frá viðureign Fram og Víkings síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sex leikir fara fram í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag þar sem lið úr Bestu deildinni verða í eldlínunni.

Leikar hefjast á Hásteinsvelli í hádeginu en þar mætir Sigurvin Ólafsson á sínar heimaslóðir með lærisveina sína í Þrótti og mætir ÍBV. Þá mætast Þór og FH í Bestu deildar slag í Boganum á Akureyri klukkan 14:00.

Klukkan 15:00 tekur Höttur á móti KA og klukkutíma síðar mætir Breiðablik Kormáki/Hvöt á Sauðarkróki.

Stórleikur dagsins fer fram á Lambhagavellinum klukkan 17:00 en þar fær Fram ríkjandi Íslandsmeistara Víkings í heimsókn.

laugardagur 4. apríl

Mjólkurbikar karla
12:00 ÍBV-Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
14:00 Þór-FH (Boginn)
15:00 Höttur-KA (Rafey-völlurinn)
16:00 Kormákur/Hvöt-Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Fram-Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)

Lengjubikar karla - C-deild, riðill 1
18:00 Afríka-Uppsveitir (Domusnovavöllurinn)
Slapp
banner
banner