Fotbolti.net
04.04.26 - 20:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna

Auglýsing
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
ÍBV er úr leik í Mjólkurbikarnum eftir tap gegn Þrótti eftir vítaspyrnukeppni í Eyjum í dag. Fótbolti.net ræddi við Aleksander Linta, sem stýrði ÍBV í fyrsta keppnisleiknum í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 4 - 6 Þróttur R.
„Ég er að sjálfsögðu ekki sáttur með úrslitin. Vítaspyrnukeppni er eins og að kasta upp pening en ég er aldrei sáttur með tap og í þessu tilfelli að detta út úr bikarnum," sagði Linta.

„Við byrjuðum nokkuð vel. Við fengum fínar stöður til að geta búið til mörk. Við fengum á okkur mark eftir hornspyrnu og það breytti leiknum aðeins. Við vorum í vandræðum með koma okkur aftur í gang en náum svo að jafna og fáum svo mark á okkur fljótlega eftir það."

„Það voru nokkrar fyrirgjafir en við þurftum að vera ákveðnari. Ég var ánægður með spilamennskuna, við stjórnuðum leiknum en ég á eftir að sjá leikinn aftur og þá verð ég kannski með aðra skoðun."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.