Fotbolti.net
04.04.26 - 17:01
Brynjar Ingi Erluson

Mjólkurbikarinn: Danijel Djuric opnaði markareikninginn í fimm marka sigri KA

Danijel Dejan Djuric er kominn á blað með KA

Danijel Dejan Djuric er kominn á blað með KA

Canon

Mynd: KA

Mjólkurbikarinn
Höttur 0 - 5 KA
0-1 Danijel Dejan Djuric ('24 , víti)
0-2 Birgir Baldvinsson ('42 )
0-3 Sveinn Margeir Hauksson ('61 )
0-4 Bjarki Fannar Helgason ('80 )
0-5 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('90 , víti)
Lestu um leikinn
KA varð sjötta liðið til að koma sér í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla er liðið vann öruggan 5-0 sigur á Hetti á Rafey-vellinum í Fellabæ í dag.

Danijel Dejan Djuric sneri aftur til landsins á dögunum og samdi við KA en hann opnaði markareikninginn og gerði fyrsta mark leiksins er hann skoraði af vítapunktinum á 24. mínútu.

Arnar Harri Guðmundsson braut á Diego Montiel og var það Danijel sem steig á punktinn og sendi Filip Kramarz, markvörð Hattar, í vitlaust horn.

Fyrsta og alveg óhætt að segja að þetta verði ekki síðasta markið sem Danijel skorar á tímabilinu.

KA hélt mun meira í boltann eða um það bil 85 prósent eins og kannski var búist við en skapaði sér fá dauðafæri næstu mínútur á eftir.

Rétt áður en hálfleikurinn var úti náðu þeir mikilvægu öðru marki inn í hálfleikinn. Birgir Baldvinsson fékk boltann við vítateigslínuna og skoraði gott mark.

Tveggja marka forysta í hálfleik. Sveinn Margeir Hauksson, sem kom á láni til KA frá Víkingum á dögunum, stimplaði sig rækilega inn með marki á 61. mínútu.

Hann fékk boltann frá Birgi og lyfti boltanum yfir Kramarz í markinu. Sveinn virtist vera að missa boltann aftur en náði á einhvern ótrúlegan hátt að skora.

Bjarki Fannar Helgason og Hallgrímur Mar Steingrímsson kláruðu síðan dæmið undir lok leiks. Bjarki skoraði með skalla eftir fyrirgjöf Hallgríms frá vinstri og síðan setti Hallgrímur kirsuberið á rjómann með marki úr vítaspyrnu undir lokin.

Bikarmeistararnir frá 2024 eru komnir í 16-liða úrslitin en Höttur er úr leik.
Sveinn Margeir sneri aftur í KA á láni frá Víkingum og skoraði í fyrsta leik

Sveinn Margeir sneri aftur í KA á láni frá Víkingum og skoraði í fyrsta leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.