Fotbolti.net
04.04.26 - 14:58
Brynjar Ingi Erluson

Mjólkurbikarinn: Markvörður Þróttar hetjan í Eyjum

Þórhallur Ísak varði tvær spyrnur í vítakeppninni

Þórhallur Ísak varði tvær spyrnur í vítakeppninni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
ÍBV 2 - 2 Þróttur R. (2-4 eftir vítakeppni)
0-1 Adam Árni Róbertsson ('28 )
1-1 Sigurður Arnar Magnússon ('48 )
1-2 Adam Árni Róbertsson ('50 )
2-2 Róbert Elís Hlynsson ('84 )
Lestu um leikinn
Þróttur R. tryggði sig áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir framlengdan leik og vítakeppni gegn ÍBV á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum í dag.

ÍBV var sterkari aðilinn fyrstu mínúturnar en Þróttarar unnu sig inn í leikinn og tóku í raun völdin.

Adam Árni Róbertsson skoraði á 28. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Sigurðar Egils Lárussonar en rétt áður hafði Sigurður átt skot í stöngina.

Aron Snær Ingason gat komið Þrótturum í 2-0 undir lok fyrri hálfleiksins er Vilhjálmur Kaldal SIgurðsson sendi Aron í gegn, en Ari i Haraldstovu Petersen gerði frábærlega í að loka á hann og rann færið út í sandinn.

Verðskulduð forysta Þróttar í hálfleik en Eyjamenn voru ekki lengi að svara í þeim síðari. Sigurður Arnar Magnússon skoraði markið eftir hornspyrnu frá Alex Frey Hilmarssyni. Boltinn datt fyrir Sigurð sem jafnaði leikinn.

Tveimur mínútum síðar gerði Adam Árni annað mark sitt fyrir gestina. Aron Snær, sem var allt í öllu í sóknarspili þeirra, kom með laglega fyrirgjöf á Adam sem afgreiddi boltann í netið.

Arnar Breki Gunnarsson fór illa með dauðafæri hinum megin á vellinum en setti boltann á einhvern ótrúlegan hátt framhjá markinu.

Eyjamenn héldu áfram í leit að jöfnunarmarki og kom það þegar sex mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Róbert Elís Hlynsson stangaði þá fyrirgjöf Vicente Valor í netið og tryggði ÍBV í framlengingu.

Hvorugt liðið skapaði sér eitthvað af viti í framlengingunni og þurfti því vítaspyrnu til að knýja fram sigurvegara en þar höfðu Þróttarar betur.

Þórhallur Ísak Guðmundsson var hetja Þróttara með tvær vítaspyrnuvörslur á meðan liðsfélagar hans skoruðu úr öllum fjórum spyrnum sínum.

Vítakeppnin:
0-0 Þórhallur ver frá Felix Erni Friðrikssyni
0-1 Sigurður Egill Lárusson
1-1 Sigurður Arnar Magnússon
1-2 Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
1-2 Þórhallur ver frá Pisco
1-3 Adam Árni Róbertsson
2-3 Mattias Edeland
2-4 Stefán Þórður Stefánsson

Sæti Þróttara í 16-liða úrslitin tryggt á meðan Eyjamenn ljúka keppni.
Adam Árni skoraði tvennu í leiknum

Adam Árni skoraði tvennu í leiknum

Canon

Mynd: Þróttur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.