Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 17:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Sannfærandi sigur hjá Breiðabliki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kormákur/Hvöt 1 - 6 Breiðablik
0-1 Höskuldur Gunnlaugsson ('8 )
0-2 Kristófer Ingi Kristinsson ('26 )
0-3 Ágúst Orri Þorsteinsson ('68 )
1-3 Trausti Þór Þorgilsson ('72 )
1-4 Kristófer Ingi Kristinsson ('74 )
1-5 Óli Valur Ómarsson ('79 )
1-6 Ágúst Orri Þorsteinsson ('91 )
Lestu um leikinn

Breiðablik er komið áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir öruggan sigur á Kormáki/Hvöt sem spilar í 2. deild í sumar.

Höskuldur Gunnlaugsson kom Blikum yfir snemma leiks þegar hann fékk boltann innfyrir vörnina. Kristófer Ingi Kristinsson bætti öðru markinu fyrir Blika eftir tæplega hálftíma leik.

Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði þriðja mark Breiðabliks þegar hann stakk varnarmenn Kormáks/Hvatar af og fór framhjá Uros Djuric í markinu og skoraði í opið markið.

Stuttu síðar minnkaði Trausti Þór Þorgilsson muninn en Kristófer Ingi bætti öðru marki sínu við og fjórða marki Breiðabliks í kjölfarið.

Blikar voru ekki búnir að segja sitt síðasta því Óli Valur Ómarsson bætti fimmta markinu við og Ágúst Orri skoraði síðan sitt annað og sjötta mark Breiðabliks í lokin.
Slapp
banner