04.04.26 - 12:32
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Haaland kom Man City yfir eftir klaufalegt brot Van Dijk

Virgil van Dijk fékk á sig vítaspyrnu

Mynd: EPA

Virgil van Dijk fékk á sig vítaspyrnu

Mynd: EPA
Manchester City leiðir gegn Liverpool, 1-0, í 8-liða úrslitum enska bikarsins á Etihad, en Erling Braut Haaland gerði markið úr öruggri vítaspyrnu á 39. mínútu leiksins.
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, braut klaufalega á Nico O'Reilly í teignum.
Boltinn kom inn á teiginn á O'Reilly og mætti Van Dijk full ákafur í enska landsliðsmanninn og réttilega dæmdur brotlegur.
Haaland fór kokhraustur á punktinn, sendi Giorgio Mamardashvili í vitlaust horn og skoraði af öryggi.
Liverpool hafði átt betri færi fram að markinu þar sem Mohamed Salah fór illa með dauðafæri og þá átti Hugo Ekitike hörkuskot sem sveif rétt yfir markið.
Sjáðu vítaspyrnuna og markið hér