Fotbolti.net
04.04.26 - 13:05
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Uppgjöf hjá Liverpool - Haaland kominn með þrennu

Erling Braut Haaland er kominn með þrennu gegn Liverpool

Erling Braut Haaland er kominn með þrennu gegn Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Man City er að ganga frá Liverpool í 8-liða úrslitum enska bikarsins, en staðan er orðin 4-0 fyrir heimamönnum í City.
Liverpool-liðið leit mjög vel stærstan hluta fyrri hálfleiks en eftir að Virgil van Dijk braut klaufalega af sér í teignum og Erling Haaland skoraði virtist koma ákveðin uppgjöf í liðinu.

Haaland tvöfaldaði forystuna nokkrum mínútum síðar með skalla eftir fyrirgjöf frá Antoine Semenyo þar sem hann steig fram fyrir Ibrahima Konate og stýrði boltanum í fjærhornið og þá gerði Semenyo þriðja markið er hann fékk stungusendingu inn fyrir.

Sjáðu markið hjá Semenyo

Haaland fullkomnaði þrennuna sjö mínútum síðar eftir sendingu frá Nico O'Reilly. Algert hrun hjá Liverpool sem er nokkuð örugglega á leið úr keppni á meðan Man City er á leið í enn einn undanúrslitaleikinn í bikarnum.

Sjáðu þriðja mark Haaland
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.