Fotbolti.net
04.04.26 - 22:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Spánn: Lewandowski með skrautlegt sigurmark - Barcelona styrkir stöðu sína

Spánn: Lewandowski með skrautlegt sigurmark - Barcelona styrkir stöðu sína
Canon

Mynd: EPA

Barcelona gat styrkt stöðu sína á toppi spænsku deildarinnar með sigri gegn Atletico Madrid í kvöld eftir að Real Madrid tapaði óvænt gegn Mallorca fyrr í dag.
Atletico náði forystunni þegar Clement Lenglet, fyrrum leikmaður Barcelona, átti sendingu inn fyrir vörnina á Giuliano Simeone sem skoraði framhjá Joan Garcia.

Marcus Rashford jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks eftir laglegt samspil við Dani Olmo.

Nicolas Gonzalez fékk að líta rauða spjaldið í blálokin á fyrri hálfleik fyrir brot á Lamine Yamal sem var sloppinn í gegn.

Robert Lewandowski kom inn á sem varamaður fyrir Rashford. Þegar þrjár mínútur voru til loka venjulegs leiktíma varði Juan Musso boltann í Lewandowski og boltinn fór af honum og í netið en það reyndist vera sigurmarkið.

Barcelona er á toppnum meeð 76 stig, sjö stigum á undan Real Madrid en Atletico er í 4. sæti með 57 stig.

Real Betis og Espanyol gerðu markalaust jafntefli fyrr í kvöld. Betis er í 5. sæti með 45 stig en Espanyol er í 9. sæti með 38 stig.

Betis 0 - 0 Espanyol

Atletico Madrid 1 - 2 Barcelona
1-0 Giuliano Simeone ('39 )
1-1 Marcus Rashford ('42 )
1-2 Robert Lewandowski ('87 )
Rautt spjald: Nico Gonzalez, Atletico Madrid ('45)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Alaves000
1Real Sociedad2+46
2Athletic000
2Barcelona2+46
3Atletico Madrid2+44
3Atletico Madrid000
4Girona2+14
4Barcelona000
5Betis000
5Levante2+14
6Celta000
6Real Madrid1+33
7Deportivo000
7Eibar1+13
8Leganes1+13
8Elche000
9Espanyol000
9Valencia1+13
10Getafe000
10Betis2-13
11Espanyol101
11Levante000
12Malaga000
12Sevilla101
13Osasuna000
13Athletic101
14Racing Santander000
14Getafe101
15Deportivo2-31
15Rayo Vallecano000
16Celta2-20
16Real Madrid000
17Malaga2-20
17Mallorca38-1042
17Real Sociedad000
18Sevilla000
18Alaves2-30
19Villarreal2-40
19Valencia000
19Girona38-1641
20Villarreal000
20Oviedo38-3429
20Las Palmas2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.