Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
Ísland í dag - Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins hefjast
Gylfi sáttur með sigurinn: „Þessi seinni hálfleikur var mjög langur"
Jói hrósaði nýliðunum: Þær tóku fyrri hálfleikinn bara í nefið
Einar Guðna: Vindurinn tók boltann bara til baka
Anton Ingi pirraður: Við verðum að hafa kassann út í 90 mínútur
Matti Guðmunds svekktur: Lögðum líf og sál í þetta en fótboltinn er brútal
Margrét Brynja orðlaus: Gáfum allt í þetta og getum gengið stoltar af velli
Hrafnhildur Ása: Búin að bíða eftir stærra hlutverki og mitt að grípa það
Jón Óli: Þurfum að finna einhvern til að nudda á henni rassgatið
Alli Jói: Markmiðið er að berjast um hærra á töflunni
Linta hefur ekki áhyggjur - „Ekki í mínum höndum"
Valdimar færði KA ró - „Hefði viljað sjá okkur vera aðeins stærri"
Grímsi ósáttur með spilamennskuna - „Ætlum að halda okkur í topp sex"
Óskar Smári: Súrt tap og eigum hálfklárað verkefni fyrir norðan
Guðni eftir útisigur: „Algjört skólabókadæmi um að nýta breidd“
Guðný: Held það hafi enginn gert ráð fyrir þessu
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
   lau 04. apríl 2026 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Jóhannes Karl í svörtu úlpunni.
Jóhannes Karl í svörtu úlpunni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
FH skoraði fjögur í dag.
FH skoraði fjögur í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tómas Orri átti mjög flottan leik á miðjunni.
Tómas Orri átti mjög flottan leik á miðjunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður virkilega vel með leikinn, við komum með það markmið að vinna einvígið og koma okkur áfram í næstu umferð bikarsins. Það heppnaðist."

„Við vorum að spila á móti hörkuliði Þórsarana, þeir eru erfiðir heim að sækja, svaka karakter í þessu liði og Siggi búinn að búa til flott lið hérna þannig við vissum að þetta yrði erfitt,"
sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir sigur liðsins gegn Þór í Mjólkubikarnum í dag.

FH lenti 0-1 undir í leiknum en svaraði með fjórum mörkum áður en Þór minnkaði muninn í blálokin.

Lestu um leikinn: Þór 2 -  4 FH

Liðsheild, vinnusemi og karakter
„Svolítið svekkjandi að þeir nái forystunni eftir fast leikatriði því mér fannst við fá möguleika á því að skora fyrsta markið. Strákarnir sýndu gríðarlegan karakter og mikla vinnusemi til að koma sér aftur inn í leikinn. Ég er fyrst og fremst ánægður með liðsheildina, vinnusemina og karakterinn í strákunum að koma hingað norður og vera tilbúnir í slaginn. Þeir gerðu það frá fyrstu mínútu og ég er rosalega sáttur með það."

FH pressaði Þórsara í leiknum og voru með hraða menn fram á við.

„Við vörðumst líka á köflum ágætlega neðarlega á vellinum og vorum óheppnir að geta ekki búið til betri stöður úr skyndisóknunum okkar af því Þórsararnir voru svolítið veiir til baka þegar þeir voru búnir að fórna mönnum, sérstaklega á sinni hægri hlið. Við vissum að þeir yrðu svolítið veikir til baka og við reyndum að keyra á þá veikleika. Það heppnaðist að einhverju leyti. Ég er ánægður með mörkin og við vorum líka að skapa okkur alls konar tækifæri. Það er fjölbreytni í því sem við erum að gera og það er ánægjulegt."

Það hefur verið smá ský yfir FH, mikið af breytingum í vetur og reynsluboltar kvaddir. Hvernig er að sýna stuðningsmönnunum svona frammistöðu í fyrsta alvöru leik?

„Við þjálfarateymið og leikmennirnir viljum náttúrulega sýna FH-ingum að við ætlum að gera þetta af alvöru; ætlum að spila með hjartanu. Við viljum að fólkið geti komið og horft á okkur og verið stolt af því sem við erum að reyna gera. Það er vinna sem strákarnir eru til í að leggja á sig. Svo eru gæði og mörk í þessu liði líka. Við ætlum að gera allt sem við getum til að halda í þetta og það verði framhald af svona frammistöðu - auðvitað verða ekki alltaf skorað svona mörg mörk - en fyrst og fremst að fólkið sjái og finni að við erum að gera allt sem við getum til þess að vinna fótboltaleiki."

Hefði viljað styttri siglingu
Hvernig líður þér með að fara til Eyja í fyrsta leik?

„Það er bara fínt, ég væri alveg til í að sigla úr Landeyjarhöfn en ég held við þurfum að fara frá Þorlákshöfn. Það er bara eins og það er. Þetta eru lið úti á landi og við fögnum því að hafa fjölbreytt lið í deildinni, gaman að fara til Vestmannaeyja að spila fótboltaleik og við verðum bara klárir í það þegar þar að kemur."

Mikil ástríða í Tomma
Tómas Orri Róbertsson var að mati Fótbolta.net maður leiksins í Boganum.

„Tommi er mjög góður fótboltamaður, en hann er líka hörku karakter, svakaleg vinnusemi í honum, alvöru vél. Hann er duglegur og hvetjandi, mikil ástríða í honum og það er það sem ég fíla við hann. Flottur leikmaður," sagði Jói Kalli og brosti.
Slapp
banner