04.05.18 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Alexander Már frá Kára til ÍA (Staðfest)

Alexander (fyrir miðju) í treyju Kára.

Mynd: Kári

Alexander (fyrir miðju) í treyju Kára.

Mynd: Kári
Alexander Már Þorláksson hefur verið kallaður úr láni frá Kára og eru allar líkur á því að hann verði í leikmannahópi ÍA í fyrsta leik liðsins í Inkasso-deildinni gegn Leikni á morgun.
<a href=\"http://skagafrettir.is/2018/05/03/alexander-fer-i-gula-buninginn-a-ny-kalladur-ur-lani-fra-kara/\" target=\"_blank\">Skagafréttir</a> greina frá.

Alexander skrifaði undir samning við ÍA í byrjun þessa árs en hann var kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá Kára árið 2017.
Alexander er framherji, fæddur árið 1995, en hann skoraði 17 mörk fyrir Kára í 3. deildinni í 18 leikjum. Hann hefur einnig leikið með Fram, KF og Hetti.
„Það ríkir mikil eftirvænting hjá Skagamönnum fyrir fyrsta leik ÍA í Inkasso-deild karla. Leikurinn fer fram í Akraneshöllinni laugardaginn 5. maí og hefst kl. 14,\" segja Skagafréttir.
„Það verður mikið um að vera á Jaðarsbakkasvæðinu fyrir leikinn. Grillið verður sjóðheitt og úrvalshamborgarar seldir fyrir leik, miðasalan verður á Aggapalli. Kór Akraneskirkju mun koma fram fyrir leik ásamt söngsveitinni Fílharmóníu og syngja eitt lag.\"
Sjá einnig:
Viðtal við Árna Snæ og upphitun fyrir leik ÍA og Leiknis