Fotbolti.net
04.05.18 - 14:29
Elvar Geir Magnússon

Gerrard orðinn stjóri Rangers (Staðfest)

Gerrard með Rangers trefilinn.

Gerrard með Rangers trefilinn.

Canon

Mynd: Rangers

Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Rangers í Glasgow. Hann hefur gert fjögurra ára samning.

Gary McAllister, fyrrum samherji hans hjá Liverpool, verður aðstoðarmaður hans.
Gerrard hefur verið að þjálfa yngri lið Liverpool.

„Það er heiður að vera orðinn stjóri Rangers. Ég ber gríðarlega virðingu fyrir þessu fótboltafélagi, sögu þess og hefðum. Ég get ekki beðið að hefja þessa vegferð,\" segir Gerrard.

Hann tekur við af Graeme Murty sem var rekinn.

Gerrard fær það verkefni að gera Rangers samkeppnishæft á nýjan leik í baráttunni við Celtic, sem Brendan Rodgers stýrir, um skoska meistaratitilinn. Celtic hefur unnið níu ár í röð og haft mikla yfirburði.

Það er mikil pressa á Gerrard en stuðningsmenn Rangers eru þekktir fyrir að vera kröfuharðir. Fjölmiðlar segja að Martin Skrtel sé meðal leikmanna sem Gerrard vilji fá til Skotlands.
Gerrard vann Meistaradeildina með Liverpool árið 2005.

Gerrard vann Meistaradeildina með Liverpool árið 2005.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.