Fotbolti.net
04.05.18 - 11:04
Magnús Már Einarsson

Ingibergur Kort í Víking Ó. á láni (Staðfest)

Stuðningsmenn Víkings Ólafsvíkur.

Stuðningsmenn Víkings Ólafsvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Víkingur Ólafsvík hefur fengið sóknar og kantmanninn Ingiberg Kort Sigurðsson á láni frá Fjölni.
Ingibergur kom inn á gegn KA í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar um síðustu helgi en í fyrra spilaði hann átta leiki í Pepsi-deildinni.

Í fyrra skoraði Ingibergur þrjú mörk í þremur leikjum á láni hjá Njarðvík í 2. deildinni.

Í vetur var Ingibergur á láni hjá Vængjum Júpíters þar sem hann stóð sig vel á undirbúningstímabilinu. Ingibergur er tvítugur en hann kemur frá Blönduósi. Hann skipti yfir í Fjölni fyrir 2. flokk.

Víkingur Ólafsvík endaði í 2. sæti í spá þjálfara og fyrirliða fyrir sumarið en liðið mætir ÍR í fyrstu umerðinni í Inkasso-deildinni á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.