04.05.18 - 16:32
Elvar Geir Magnússon
Lennon gerir nýjan fjögurra ára samning við FH (Staðfest)

Lennon er búinn að gera nýjan samning við FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Lennon er búinn að gera nýjan samning við FH.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Skoski sóknarleikmaðurinn Steven Lennon hefur gert nýjan fjögurra ára saming við FH en þetta tilkynnti Hafnarfjarðarliðið rétt í þessu.
Lennon er þrítugur en hann er einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar. Hann skoraði sigurmark FH þegar liðið lagði Grindavík í fyrstu umferð.
Lennon er þrítugur en hann er einn besti leikmaður Pepsi-deildarinnar. Hann skoraði sigurmark FH þegar liðið lagði Grindavík í fyrstu umferð.
Sögusagnir voru í gangi um að Lennon væri ekki fullkomlega sáttur í herbúðum FH og Breiðablik reyndi að fá leikmanninn í sínar raðir.
FH og Breiðablik mætast einmitt á mánudagskvöld.
Nú er ljóst að Lennon er ekki á förum en hér að neðan má sjá hann taka í höndina á formanni FH, Jóni Rúnari Halldórssyni, og senda stuðningsmönnum FH skilaboð.
Lennon skoraði 15 mörk í 22 leikjum fyrir FH í Pepsi-deildinni í fyrra en hann er á fimmta tímabili sínu hjá félaginu. Hann hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari með FH og þá varð hann bikarmeistari með Fram 2013.
sunnudagur 6. maí
16:00 ÍBV-Fjölnir (Hásteinsvöllur)
17:00 Fylkir-KA (Egilshöll)
19:15 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
mánudagur 7. maí
19:15 Keflavík-Grindavík (Nettóvöllurinn)
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
19:15 FH-Breiðablik (Kaplakrikavöllur)

Okkar maður @StevenLennon_10 sendir stuðningsmönnum FH skilaboð. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/ZlTYElUcEa
— FHingar.net (@fhingar) May 4, 2018
Hér má sjá þá Jón Rúnar formann knattspyrnudeildar FH og @StevenLennon_10 við undirskrift á nýjum fjögurra ára samning Lennon við FH, það er ekki laust fyrir að það sé blik í auga formanns FH. Þetta eru sannarlega gleðifréttir fyrir okkur FH-inga! #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/5aombJJOHc