Orri: Eins og við séum á einhverri sjálfstýringu lengi framan af leik
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við vorum bara mjög slök fyrstu 60 mínúturnar. Síðasta hálftíman er eins og við vöknum og áttum okkur á hvað þarf til að vinna fótboltaleiki, “ sagði Orri Þórðarson eftir svekkjandi 2-1 tap fyrir HK/Víking í kvöld.
„Það tekur alltaf tíma að slípa lið saman og við vorum ekki í synchi og ekki samtaka lengi fram af leik. En þess þá heldur þurfum við að vera á tánum og gera þessa hluti sem þarf að gera til að vinna. Auðvitað er alltaf í fyrsta leik einhver taugaspenna og liðin eiga eftir að slípast saman en þá er algjört skilyrði að vera að berjast og djöflast,“ sagði hann aðspurður um hvort það hefði áhrif að það hafa verið nokkrar mannabreytingar hjá FH milli ára.
Spurður um framhaldið og hvort von væri á frekari breytingum hjá FH svaraði hann: „Við höfum gefið það út að okkar markmið er að komast í efri hlutan en við gerum það ekki með svona leik og við þurfum að bæta okkur stórfenglega.
Ég býst ekki við að neinn komi og við erum ekki að leitast eftir því. Ég sé ekki neinn fara frá okkur. Þessi mannskapur, ég hef fulla trú á honum. Við þurfum að sýna okkar rétta andlit.“