FH skoðar framherja og Viktor Jóns er nafn á blaði

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur síðustu daga verið orðað við Vikor Jónsson hjá ÍA. Framherjnn hefur byrjað síðustu tvo leiki ÍA á bekknum og hefur verið einnig verið orðaður við uppeldisfélagið Víking og Val.
Fótbolti.net barst sterk ábending um að FH hefði lagt fram kauptilboð í Viktor en Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, segir svo ekki vera.
„Við erum að skoða framherjastöðuna, Úlfur Ágúst á tvo leiki eftir hjá okkur áður en hann fer aftur til Bandaríkjanna og við erum að kanna möguleikana. Viktor er nafn á blaði hjá okkur en við höfum ekki boðið í hann," segir Davíð.

TENGT EFNI
Jói Bjarna í FH á láni út tímabilið (Staðfest)
Viktor er fæddur árið 1994 og er samningsbundinn ÍA út næsta tímabil. Á þessu tímabili hefur hann skorað fjögur mörk í deildinni og þrjú í bikarnum. Á síðasta tímabili skoraði hann tíu mörk í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð