Angel Di Maria fékk að líta rauða spjaldið þegar hann steig á Fernandinho í pirringi á 69. mínútu leiks Manchester City og PSG í Meistaradeildinni. Ekki beint hegðun sem sæmir engli hjá Angel.
City leiðir leikinn 2-0 og er á leið í úrslitaleikinn nema PSG skori þrjú mörk undir lok leiks. Um tíu mínútur eru eftir af leiknum.
City leiðir leikinn 2-0 og er á leið í úrslitaleikinn nema PSG skori þrjú mörk undir lok leiks. Um tíu mínútur eru eftir af leiknum.
Di Maria var orðinn pirraður og þegar Fernandinho ætlaði að fá boltann frá honum og taka innkast þá steig Di Maria á Brasilíumanninn.
Atvikið má sjá með því að smella hér.
Di Maria not an angel and sees red.
— Gary Lineker 💙 (@GaryLineker) May 4, 2021
Athugasemdir