Fotbolti.net
04.06.17 - 10:30
Kristófer Kristjánsson

Antoine Griezmann verður áfram hjá Atletico (Staðfest)

Antoine Griezmann

Antoine Griezmann

Canon

Mynd: Getty Images

Antoine Griezmann, sóknarmaður Atletico Madrid, hefur staðfest að hann verði áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili en hann hefur verið gífurlega mikið orðaður við Manchester United undanfarið.
Griezmann þótti afar líklegur til að færa sig yfir til Englands í sumar en íþróttadómstóll Evrópu staðfesti á dögunum félagsskiptabann Atletico Madrid sem þýðir að liðið getur ekki styrkt sig í sumar. Í kjölfar þeirra frétta hefur þessi 26 ára Frakki bundið enda á vangaveltur um framtíð sína.

Þetta kom fram í viðtali hans við Telefoot en þar segir hann að það væri einfaldlega rangt að yfirgefa félagið undir þessum kringumstæðum.

,Þetta er erfiður tími fyrir félagið,\" sagði Griezman.

„Það væri óheiðarlegt að yfirgefa það núna, ég talaði við forráðamennina og við komum sterkir til baka á næsta tímabili.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.