Fotbolti.net
04.06.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leeds kaupir Hadi Sacko (Staðfest)

Verður áfram hjá Leeds.

Verður áfram hjá Leeds.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds hefur gengið frá kaupum á Hadi Sacko frá Sporting Lisbon. Leikmaðurinn gerir þriggja ára samning, en kaupverðið er óuppgefið.

Þessi 23 ára gamli Frakki varði síðasta tímabili á láni hjá Leeds og skoraði tvisvar í 38 deildarleikjum. Hann á leiki með yngri landsliðum Frakklands, en hann byrjaði ferilinn hjá Bordeaux.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Leeds kaupir síðan Andrea Radrizzani tók við eignarhaldi hjá félaginu þann 23. maí síðastliðinn.

Leeds er þessa stundina í þjálfaraleit eftir að Garry Monk sagði starfi sínu lausu á dögunum. Hann ákvað að hætta aðeins tveimur dögum eftir að Radrizzanni eignaðist meirihluta í félaginu.

Tímabilið sem var að líða var gott fyrir Leeds. Liðið endaði í sjöunda sæti Championship-deildarinnar, hársbreidd frá umspili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.