04.06.17 - 08:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sverrir Ingi kominn með nýjan þjálfara (Staðfest)

Jose Luis Oltra.

Mynd: Getty Images

Jose Luis Oltra.

Mynd: Getty Images
Sverrir Ingi Ingason og liðsfélagar hans í Granada eru komnir með nýjan þjálfara. Sá heitir José Luis Oltra og er reynslumikill.
Tony Adams þjálfaði Granada í síðustu leikjum tímabilsins á Spáni, en það gekk ekkert rosalega vel hjá honum.

Sverrir Ingi og félagar féllu úr spænsku úrvalsdeildinni og munu leika í B-deildinni á næstu leiktíð.
Jose Luis Oltra mun stýra liðinu í B-deildinni, en hann hefur skrifað undir eins árs samnig með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Oltra er eins og áður segir reynslumikill þjálfari, en hann hefur verið í þjálfarabransanum frá 2001. Hann þjálfaði síðast Cordóba, en áður var hann við stjórnvölin hjá Almeria, Deportivo og fleiri liðum.
Sverrir Ingi kom til Granada í janúar og verður líklega áfram hjá liðinu í B-deildinni á næstu leiktíð.