Fotbolti.net
04.06.18 - 19:30
Ingólfur Stefánsson

Þórhallur ráðinn aðstoðarmaður Gulla Jóns (Staðfest)

Þórhallur ráðinn aðstoðarmaður Gulla Jóns (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur

Þórhallur Siggeirsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Gunnlaugs Jónssonar í meistaraflokki karla hjá Þrótti.

Þórhallur mun einnig sjá um þjálfun hjá 2. flokki félagsins. Hann er með UEFA-A þjálfaragráðu og M.Sc gráðu í íþróttavísindum og þjálfun frá Háskólanum í Reykjavík.

Þórhallur hefur áður þjálfað hjá HK, Val og Stjörnunni þar sem hann var yfirþjálfari yngri flokka frá 2014-2017.

Þróttarar eru í 5. sæti Inkasso-deildar karla eftir fyrstu fimm leikina með sjö stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.