Fotbolti.net
04.06.19 - 16:45
Arnar Daði Arnarsson

Jagielka hættur hjá Everton (Staðfest)

Jagielka er hættur hjá Everton.

Jagielka er hættur hjá Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Eftir 12 ár hjá Everton hefur hinn 36 ára enski leikmaður, Phil Jagielka leikið sinn síðasta leik fyrir Everton. Þetta tilkynnti hann á Instagram síðu sinni.

Jagielka er varnarmaður sem gekk í raðir Everton frá Sheffield United fyrir tímabilið 2007 og hefur leikið á Goodison Park síðan þá. Hann á alls 332 leiki að baki með Everton en þar áður lék hann 254 leiki með Sheffield United.
Jagielka hefur verið fyrirliði Everton undanfarin ár en hann var til að mynda fyrsti leikmaður Everton til að vera fyrirliði enska landsliðsins þegar hann bar bandið í landsleik gegn Litháen í undankeppni Evrópumótsins árið 2015.

Óvíst er hvar þessi reynslu mikli leikmaður leikur á næsta tímabili.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.