04.06.19 - 11:18
Magnús Már Einarsson
Lopetegui aftur í boltann - Tekur við Sevilla (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Julen Lopetegui, fyrrum þjálfari spænska landsliðsins og Real Madrid, hefur verið ráðinn þjálfari Sevilla.
Hinn 52 ára gamli Lopetegui átti erfitt uppdráttar í fyrra en hann var rekinn tvívegis á einungis nokkrum mánuði.
Lopetegui var rekinn tveimur dögum áður en spænska landsliðið hóf leik á HM í Rússlandi eftir að það lak út að hann hefði samþykkt að taka við sem þjálfari Real Madrid eftir mótið.

Dvöl hans hjá Real var stutt en hann var rekinn í október eftir 5-1 tap gegn Barcelona.
Hjá Sevilla tekur Lopetegui við af Joaquin Caparros en hann er að glíma við hvítblæði.