04.06.19 - 11:41
Elvar Geir Magnússon
Luka Jovic til Real Madrid (Staðfest)

Luka Jovic.

Mynd: Getty Images

Luka Jovic.

Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Luka Jovic hefur verið keyptur til Real Madrid frá Eintracht Frankfurt.
Kaupverðið var ekki gefið upp en er talið vera í kringum 65 milljónir evra.
Jovic er 21 árs serbneskur landsliðsmaður sem vakið hefur mikla athygli.
Kaupverðið var ekki gefið upp en er talið vera í kringum 65 milljónir evra.
Jovic er 21 árs serbneskur landsliðsmaður sem vakið hefur mikla athygli.
Hann skoraði 17 mörk í 32 leikjum í þýsku Bundesligunni á liðnu tímabili og átti auk þess sex stoðsendingar.
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, er að endurnýja leikmannahóp sinn eftir vonbrigðatímabil.
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, er að endurnýja leikmannahóp sinn eftir vonbrigðatímabil.
👉 #WelcomeJovic pic.twitter.com/OAkj1m3WvN
— Real Madrid C.F. 🇬🇧🇺🇸 (@realmadriden) June 4, 2019
