Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 04. júní 2020 21:57
Brynjar Ingi Erluson
Balotelli: Ég er veikur
Mario Balotelli
Mario Balotelli
Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Mario Balotelli segist ekki hafa mætt á æfingar vegna veikinda en hann greinir frá þessu á Instagram í dag.

Balotelli, sem er á mála hjá Brescia, hefur skrópað reglulega á æfingar hjá Brescia síðustu tvær vikurnar en hann er með útskýringu við því.

Hann greinir frá því á Instagram að hann hafi ekkert mætt vegna veikinda. Hann sé að glíma við vandamál í meltingarvegi en félagið hefur þó ekkert heyrt frá leikmanninum.

Massimo Cellino, forseti Brescia, segir það hafa verið mistök að fá Balotelli til félagsins en það er talið líklegt að hann félagið rifti samningnum við hann áður en tímabilið klárast.

Samningur hans gildir næstu tvö árin en ef Brescia fellur þá er hann frjáls ferða sinna.
Athugasemdir
banner
banner
banner