04.07.17 - 19:25
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Alex Neil tekinn við Preston (Staðfest)

Alex Neil er nýr knattspyrnustjóri Preston North End

Mynd: Getty Images

Enska 1.deildarliðið Preston North End hefur ráðið fyrrverandi Norwich og Hamilton stjórann, Alex Neil, sem nýjan knattspyrnustjóra liðsins.
Enska Championship liðið Preston hefur ráðið fyrrverandi Norwich og Hamilton stjórann, Alex Neil, sem nýjan knattspyrnustjóra liðsins.
Hinn 36 ára gamli Neil kemur í stað Simon Grayson, sem fór frá Preston til að taka við Sunderland í síðustu viku. Skotinn mun taka formlega við liðinu á fimmtudag eftir að hafa skrifað undir eins árs samning.
„Þetta er mjög góð áskorun fyrir mig. Klúbburinn hefur náð árangri og ég hlakka til að reyna að halda áfram með það,\" sagði Neil.
Neil hefur ekki þjálfað síðan í mars, en þá var hann rekinn frá Norwich eftir 27 mánuði í starfi á Carrow Road. Hann kom Norwich upp í ensku úrvalsdeildina í gegnum umspil árið 2015, en Kanarífuglarnir náðu ekki að halda sæti sínu í deild þeirra bestu og féllu strax aftur ári seinna.
Preston endaði í 11.sæti í Championship deildinni á síðasta tímabili en Neil telur að hann hafi hóp með hæfileika til að enda ofar en það í töflunni.
„Endanlegt markmið allra félaga í Championship deildinni er að komast upp í úrvalsdeildina. Klúbburinn hefur verið stöðugur í Championship undanfarin tvö ár og þú veist aldrei hvað gerist á næsta ári eða tveimur, en við viljum reyna að byggja upp lið sem er fær um að keppa í efri hluta deildarinnar.\"