Fotbolti.net
04.07.17 - 21:57
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Arnór Ingvi til AEK á láni (Staðfest)

Arnór er genginn í raðir AEK

Arnór er genginn í raðir AEK

Canon

Mynd: Heimasíða AEK

Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason er genginn í raðir AEK frá Aþenu á eins árs lánsamningi frá Rapid Vín en þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins nú undir kvöld.
Við sögðum frá því fyrr í dag að Arnór væri mættur til Grikklands í læknisskoðun og nú hefur AEK staðfest að Arnór sé genginn í raðir félagsins á láni en með möguleika á að kaupa hann þegar lánssamningurinn klárast.

Arnór kemur frá Rapid Vín í Austurríki þar sem hann hefur ekki náð að festa sig í sessi eftir að hafa komið fyrir metfé þangað frá Norrköpping í Svíþjóð.

Arnór hefur átt fast sæti í landsliðshóp Íslands undanfarna 18 mánuði og hefur verið að banka á dyrnar að byrjunarliðssæti þar. Það er vonandi að þessi félagaskipti hans færi honum aftur það sjálfstraust sem hann hafði á tíma sínum í Svíþjóð eftir fremur misheppnaða dvöl í Austurríki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.