Fotbolti.net
04.07.17 - 21:30
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Borja Baston lánaður til Malaga (Staðfest)

Borja Baston lánaður til Malaga (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Borja Baston hefur verið lánaður frá enska úrvalsdeildarliðinu Swansea til spænska liðsins Malaga. Þetta var tilkynnt nú í kvöld á heimasíðu Swansea.
Borja gekk til liðs við Svanina frá Atletico Madrid sumarið 2016, en gekk illa að festa sig í byrjunarliðinu hjá velska liðinu í vetur.

Þessi 24 ára gamli framherji, er á samning hjá Swansea til ársins 2020, en hefur nú verið lánaður aftur til heimalandsins þar sem hann lék einnig fyrir Eibar við góðan orðstír.

Borja var dýrasti leikmaður í sögu Swansea þegar hann kom fyrir 15,5 milljónir punda síðasta sumar. Hann hins vegar lék aðeins 18 leiki í ensku úrvalsdeildinni, aðeins fjóra þeirra í byrjunarliðinu, á síðasta tímabili. Eina mark hans fyrir félagið kom í 3-2 tapi gegn Arsenal í október á síðasta ári.

Borja er ætlað að fylla skarð Sandro Ramirez hjá Malaga sem gekk til liðs við Everton fyrr í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.