Fotbolti.net
04.07.17 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Florian Lejeune til Newcastle (Staðfest)

Florian Lejeune til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur fengið varnarmanninn Florian Lejeune í sínar raðir frá spænska félaginu Eibar.

Florian skrifaði undir fimm ára samning en talið er að kaupverðið hljóði upp á 8,7 milljónir punda.

Florian er fyrrum franskur unglingalandsliðsmaður en hann var á mála hjá Manchester City á þarsíðasta tímabili án þess að koma við sögu.
„Þegar stjóri eins og Rafa Beníez vill þig þá ertu ánægður með að skrifa undir,\" sagði Florian.

Florian hefur einnig leikið með Villarreal og Girona á Spáni en hann var fastamaður í liði Eibar á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.