04.07.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
George Boyd til Sheffield Wed (Staðfest)

Boyd í leik með Burnley á síðasta tímabili.

Mynd: Getty Images

Sheffield Wednesday hefur fengið George Boyd í sínar raðir. Boyd var síðast á mála hjá Burnley, en hann ákvað ekki að framlengja samning sinn þar eftir tímabilið.
Hann skrifar undir tveggja ára samning við Sheffield Wednesday.
Hinn 31 árs gamli Boyd skoraði tvö mörk í 39 leikjum í öllum keppnum með Burnley á síðasta tímabili.

Hjá Burnley var hann liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar.
Boyd er leikmaður sem hleypur gríðarlega mikið. Á síðasta ári greindi hann frá því að lykillinn fyrir hlaupin væru Red Bull og pasta.
„Ég borða bara pasta og nóg af því,\" sagði Boyd í viðtali við Daily Mail. „Ég fæ mér líka Red Bull á hverjum degi.\"
Sheffield Wednesday hefur leik í Championship-deildinni laugardaginn 5. ágúst, á útivelli gegn Preston.