04.07.17 - 21:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Huddersfield fær til sín tvo til viðbótar (Staðfest)

Danny Williams í baráttu við nýja liðsfélaga sinn Aaron Mooy

Mynd: Getty Images

Kasey Palmer í leik með unglingaliði Chelsea

Nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, Huddersfield Town, eru með pennann heldur betur á lofti í dag. Félagið tilkynnti fyrr í dag komu Tom Ince til félagsins og nú hafa þeir tilkynnt tvo leikmenn til viðbótar. Þetta eru þeir Danny Williams, sem kemur á frjálsri sölu frá Reading og Kasey Palmer, sem kemur á eins árs lánssamningi frá Chelsea.
Danny Williams kemur frá Reading eins og fyrr segir og skrifaði hann undir tveggja ára samning við Huddersfield. Þessi bandaríski miðjumaður lék 135 leiki fyrir Reading síðan hann kom til félagsins frá Hoffenheim árið 2013.
„Danny kemur með mikil gæði í hvaða lið sem hann spilar fyrir, hann er mikill íþróttamaður sem spilar af mikilli ákefð og það er það sem gerir hann að góðum leikmanni og passar vel inn í okkar leikstíl,\" sagði David Wagner, stjóri Huddersfield, um nýjasta leikmann liðsins.
Kasey Palmer kemur aftur til félagsins á láni frá Chelsea en hann var einnig á láni hjá liðinu á síðasta tímabili. Þessi sóknarsinnaði miðjumaður varð fljótt uppáhald stuðningsmanna á síðasta tímabili þegar hann skoraði sigurmark liðsins gegn Brentford í fyrstu umferð 1.deildarinnar í fyrra.
Palmer var meiddur meira og minna allan seinni hluta tímabils í fyrra en lék þó í úrslitaleik umspilsins þegar Huddersfield tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni.
„Ég er mjög ánægður að fá Kasey aftur til félagsins, eins og við vitum þá er þetta mjög efnilegur enskur leikmaður sem getur náð langt á sínum ferli. Ég veit að honum finnst að hann eigi óklárað verkefni frá síðustu leiktíð og ég tel að það muni drífa hann áfram á komandi leiktíð,\" sagði Wagner um Palmer.