Fotbolti.net
04.07.17 - 22:24
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Pepe til Besiktas (Staðfest)

Pepe til Besiktas (Staðfest)
Canon

Mynd: Twitter síða Besiktas

Portúgalski varnarmaðurinn Pepe hefur gengið til liðs við tyrkneska félagið Besiktas. Pepe kemur frítt til liðsins eftir að hann ákvað að endurnýja ekki samning sinn við Real Madrid í sumar.
Hinn blóðheiti Portúgali hefur verið síðustu tíu ár hjá Real Madrid eftir að hafa komið frá Porto í heimalandinu árið 2007. Hann spilaði samtals 337 leiki fyrir spænska stórliðið og verður hans líklega sárt saknað í herbúðum Real.

Pepe sem er 34 ára gamall, gerir þriggja ára samning við Besiktas.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.