Fotbolti.net
04.07.17 - 14:09
Magnús Már Einarsson

Tom Ince til Huddersfield (Staðfest)

Tom Ince til Huddersfield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni hafa keypt kantmanninn Tom Ince frá Derby County.

Talið er að kaupverðið sé í kringum tíu milljónir punda en Ince skrifaði undir þriggja ára samning.

Ince hefur skorað 27 mörk í 97 leikjum með Derby síðan hann kom til liðsins árið 2015. Hann hefur meðal annars leikið áður með Hull, Blackpool og Crystal Palace á ferli sínum.
David Wagner, stjóri Huddersfield, er að vinna í að styrkja hópinn fyrir úrvalsdeildina og líklegt er að varnarmaðurinn Danny Williams komi frítt frá Reading í dag eða á morgun.

Miðjumaðurinn Kasey Palmer gæti einnig komið aftur til Huddersfield á láni frá Chelsea líkt og á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.