04.07.18 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Betis kaupir Barragan frá Boro (Staðfest)

Barragan í leik með Middlesbrough.

Mynd: Getty Images

Barragan í leik með Middlesbrough.

Mynd: Getty Images
Real Betis hefur nýtt sér klásúlu og keypt varnarmanninn þrítuga Antonio Barragan frá Middlesbrough.
Barragan lék með Betis á lánssamningi á síðasta tímabili en spænska félagið hafði möguleika á að fá hann alfarið og nýtti sér það.
Barragan lék með Betis á lánssamningi á síðasta tímabili en spænska félagið hafði möguleika á að fá hann alfarið og nýtti sér það.
Barragan er hægri bakvörður sem kom til Boro frá Valencia 2016 og lék 26 úrvalsdeildarleiki. Hann náði þó ekki að koma í veg fyrir fall úr ensku úrvalsdeildinni.
Betis hafnaði í 6. sæti í La Liga og komst í Evrópudeildina. Barragan er annar leikmaðurinn sem félagið fær í sumar. Áður hafði miðjumaðurinn Takashi Inui komið frá Eibar.
Betis hafnaði í 6. sæti í La Liga og komst í Evrópudeildina. Barragan er annar leikmaðurinn sem félagið fær í sumar. Áður hafði miðjumaðurinn Takashi Inui komið frá Eibar.
