04.07.18 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Johnstone seldur frá Man Utd til West Brom (Staðfest)

Johnstone var á láni hjá Aston Villa á síðasta tímbili og stóð sig vel.

Mynd: Getty Images

West Brom hefur keypt markvörðinn Sam Johnstone frá Manchester United fyrir upphæð í kringum 5 milljónir punda.
Hinn 25 ára gamli Johnstone lék aldrei aðalliðsleik fyrir United. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við West Brom, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.

Johnstone var á síðasta tímabili á láni hjá Aston Villa. Hann stóð sig vel og var nálægt því að hjálpa liðinu upp í ensku úrvalsdeildina. Villa tapaði í úrslitaleik umspilsins í Championship-deildinni fyrir Fulham. Leikurinn fór 1-0.
„Ég er mjög ánægður að vera hérna. Ég talaði við fullt af fólki um félagið og ég hef ekkert heyrt nema góða hluti,\" sagði Johnstone er að hann skrifaði undir.
Johnstone verður að öllum líkindum aðalmarkvörður West Brom á næsta tímabili þar sem Ben Foster er sagður á förum. Hann vill ólmur komast í burtu.
Sjá einnig:
Vilja fá 10-12 milljónir punda en fengu boð upp á 1 milljón