Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   mán 04. júlí 2022 20:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnar Grétars: Ein mistök og okkur refsað grimmilega
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA og Valur skildu jöfn 1-1 í elleftu umferð Bestu deildarinnar í kvöld. KA hefði hæglega getað náð í stigin þrjú. Fótbolti.net ræddi við Arnar Grétarsson þjálfara KA eftir leikinn.


Lestu um leikinn: KA 1 -  1 Valur

„Smá svekktur að hafa ekki farið með öll þrjú stigin, mér fannst við verðskulda það. Leikurinn var tiltölulega jafn í fyrri hálfleik. Það var bara eitt lið á vellinum í seinni hálfleik," sagði Arnar.

„Við gerum ein stór mistök eftir hornspyrnu þar sem menn gleyma sér og okkur er refsað grimmilega fyrir það og komum okkur í erfiða stöðu útaf því."

„Fyrri hálfleikur var ekkert slæmur, við vorum að spila á móti góðu Valsliði sem hefur verið að vinna síðustu leiki. Eina sem vantaði var  þetta annað markið til að gera daginn svolítið skemmtilegri."

Arnar vill meina að KA hefði átt að fá vítaspyrnu þegar Nökkvi Þeyr féll í teignum.

„Ég myndi vilja sjá atvikið aftur með Nökkva, ég held að hann hafi verið með líkamann á milli og hafi verið sparkaður niður. Það er ennþá meira svekkjandi ef þetta hafi átt að vera víti. Þarna var staðan 1-1 og lítið eftir, ég veit ekki hvort það hafi verið út af því að það hafi verið nýbúið að henda einu rauðu spjaldi á loft."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner