10.11.26 - 14:20
Kári Snorrason
Orri orðaður við Man Utd - Verðmiðinn sagður yfir 20 milljónir evra
Verður draumur Arnars að veruleika?

Skorað fimm í síðustu sex leikjum með Sociedad.

Mynd: EPA

Skorað 12 mörk í 22 landsleikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er svo sannarlega heit vara um þessar mundir. Hafandi verið að gera frábæra hluti með Real Sociedad á Spáni hefur Orri verið orðaður við skref í ensku úrvalsdeildina.
Ítalski miðillinn CalcioMercato greinir frá því að Orri er ofarlega á óskalista Man Utd sem er í framherjaleit vegna meiðsla Benjamin Sesko.

TENGT EFNI
Orri um orðrómana: Ekki að flýta mér burt frá Spáni
Orri hefur jafnframt verið orðaður við Everton, Tottenham, Brentford og Newcastle.
Hann er samningsbundinn Real Sociedad til ársins 2030. Skyldi hann vera seldur vill spænska félagið fá yfir 20 milljónir evra fyrir landsliðsfyrirliðann.
Það er spurning hvort að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari reynist forspár en hann sagði á blaðamannafundi á dögunum að hann vildi sjá Orra fara til Manchester United, en Arnar er stuðningsmaður Man Utd líkt og Orri.
Fótbolti.net ræddi við Orra í gærdag og var hann spurður út í mögulegt skref í ensku úrvalsdeildina.
„Ég er auðvitað United maður en ég er mjög, mjög ánægður hjá Real Sociedad eins og staðan er núna. Ég er ekki að líta í kringum mig og einbeiti mér bara að því sem við erum að gera. Það gengur vel hjá okkur og við eigum fullt af leikjum framundan, fjórar keppnir og nóg að gera," sagði Orri.