Joao Moutinho hefur framlengt samning sinn við Wolves um eitt ár. Hann er nú samningsbundinn út komandi tímabil.
Moutinho, sem er portúgalskur landsliðsmaður, hefur aðeins verið að líta í kringum sig að undanförnu en bindur nú enda á sögusagnir um að hann gæti haldið áfram.
Moutinho, sem er portúgalskur landsliðsmaður, hefur aðeins verið að líta í kringum sig að undanförnu en bindur nú enda á sögusagnir um að hann gæti haldið áfram.
Komandi tímabil verður fimmta tímabil Moutinho hjá Wolves en hann kom til félagsins frá Mónakó sumarið 2018.
Hann á að baki 146 leiki fyrir portúgalska landsliðið og 176 leiki fyrir Wolves. Á síðasta tímabili lék hann 39 leiki í öllum keppnum með Wolves.
Athugasemdir