04.08.16 - 11:39
Elvar Geir Magnússon
Atli Hrafn Andrason í raðir Fulham (Staðfest)

Atli Hrafn í leik með KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Hrafn í leik með KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarleikmaðurinn efnilegi Atli Hrafn Andrason hefur verið seldur frá KR til Fulham en þetta kemur fram á heimasíðu Vesturbæjarliðsins.
„Knattspyrnudeild KR þakkar Atla Hrafni hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta hjá nýju félagi,\" stendur á kr.is.

Atli er 17 ára gamall, fæddur 1999, og fékk sína eldskírn með meistaraflokki KR í fyrra. Hann hefur leikið fimm leiki með KR í Pepsi-deildinni.
Hann hefur leikið alls 14 leiki og skorað 2 mörk fyrir U17 landslið Íslands.
Hjá Fulham hittir hann annan ungan efnilegan íslenskan leikmann en Jón Dagur Þorsteinsson, sem er fæddur 1998, hefur leikið með unglingalið félagsins.
Aðallið Fulham lék í úrvalsdeildinni fyrir nokkrum árum en hafnaði í 20. sæti Championship-deildarinnar á síðasta tímabili.