Fotbolti.net
04.08.16 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Dimitrov Zelkjo í Fjarðabyggð (Staðfest)

Jón Arnar Barðdal er á leið til Bandaríkjanna í skóla.

Jón Arnar Barðdal er á leið til Bandaríkjanna í skóla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fjaraðbyggð hefur fengið framherjann Dimitrov Zelkjo í sínar raðir fyrir lokasprettinn í Inkasso-deildinni.

Félagaskiptin voru send út áður en félagaskiptaglugginn á Íslandi lokaði á sunnudag en Zeljko fékk síðan leikheimild í dag.

Zeljko er framherji en hann var síðast á mála hjá OFK Beograd í úrvalsdeildinni í Serbíu.

Hinn 22 ára gamli Zeljko kom til OFK í fyrra eftir að hafa raðað inn mörkum með Radnički Pirot í C-deildinni í Serbíu.
Hjá Fjarðabyggð á Zeljko að fylla skarðið sem Jón Arnar Barðdal skilur eftir sig en hann er á leið til Bandaríkjanna í skóla.

Zeljko getur spilað sinn fyrsta leik með Fjarðabyggð á laugardag þegar liðið mætir Keflavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.