04.08.16 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Huginn fær spænskan miðjumann (Staðfest)

Úr leik hjá Hugin í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Huginn hefur fengið spænska miðjumanninn Jamie Raul Fuentes Galavi í sínar raðir.
Félagaskipti Jamie voru send til Spánar áður en félagaskiptaglugginn lokaði á Íslandi á sunnudag.
Hinn tvítugi Jamie fékk síðan leikheimild með Huginn í dag en hann spilaði síðast með Extremadura UD í spænsku D-deildinni.

Jamie getur leikið sinn fyrsta leik með Huginn á morgun þegar topplið KA kemur í heimsókn á Seyðisfjörð í Inkasso-deildinni.
Huginn er í fallsæti en liðið fékk í síðustu viku framherjann Mirnes Selamovic frá Bosníu-Hersegóvínu og Gunnar Wigelund frá Aftureldingu.
Spænski framherjinn Diego Merchan Cabello er hins vegar farinn frá Hugin eftir að hafa leikið einungis tvo leiki með liðinu. Diego hafði komið til Hugins í síðasta mánuði.