04.08.16 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson
Mascherano framlengir við Barcelona (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Hinn 32 ára gamli Javier Mascherano er búinn að skrifa undir þriggja ára samningsframlengingu við Barcelona og verður því hjá félaginu til 35 ára aldurs.
Mascherano var eftirsóttur af Juventus í sumar en ákvað að vera eftir hjá Börsungum eftir að Luis Enrique þjálfari fullvissaði hann um að hann væri enn mikils metinn hjá félaginu.
Mascherano var eftirsóttur af Juventus í sumar en ákvað að vera eftir hjá Börsungum eftir að Luis Enrique þjálfari fullvissaði hann um að hann væri enn mikils metinn hjá félaginu.
Mascherano kom til Barcelona frá Liverpool fyrir sex árum og hefur síðan þá verið mikilvægur hlekkur í einum sterkasta leikmannahóp í sögu félagsliða.
Leikmaðurinn fjölhæfi á 129 landsleiki að baki fyrir Argentínu og komst í úrslitaleik Copa America í sumar, en tapaði þar gegn Síle.
Leikmaðurinn fjölhæfi á 129 landsleiki að baki fyrir Argentínu og komst í úrslitaleik Copa America í sumar, en tapaði þar gegn Síle.
