04.08.16 - 17:45
Magnús Már Einarsson
Newcastle lánar Thauvin aftur til Marseille (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marseille hefur fengið kantmanninn Florian Thauvin á láni frá Newcastle.
Newcastle keypti Thauvin frá Marseille á tólf milljónir punda fyrir ári síðan.
Hinn 23 ára gamli Thauvin lék hins vegar einungis 16 leiki með Newcastle á síðasta tímabili áður en hann fór til Marseille á láni síðari hluta tímabils.

Marseille hefur nú fengið Thauvin aftur á láni en félagið á einnig forkaupsrétt á honum næsta sumar.