Fotbolti.net
04.08.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pablo Hernandez til Leeds á láni (Staðfest)

Pablo Hernandez á 57 deildarleiki að baki fyrir Swansea.

Pablo Hernandez á 57 deildarleiki að baki fyrir Swansea.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski sóknartengiliðurinn Pablo Hernandez er kominn til Leeds United á sex mánaða lánssamning.

Samningnum fylgir valkvætt kaupákvæði sem gerir Leeds kleift að ganga frá kaupunum á Spánverjanum knáa í janúar.
Garry Monk, stjóri Leeds, þekkir vel til Hernandez enda voru þeir saman hjá Swansea í tvö ár.

Hernandez, sem er 31 árs, var eitt sinn lykilmaður í sterku liði Valencia og hefur skorað eitt mark í fjórum landsleikjum með Spáni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.