Fotbolti.net
04.08.16 - 20:11
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Piotr Zielinski til Napoli (Staðfest)

Piotr Zielinski til Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Napoli var að ganga frá kaupum á pólska landsliðsmanninum Piotr Zielinski.

Zielinski er þaulreyndur í ítalska boltanum þar sem hann hefur leikið allan sinn atvinnumannaferil.
Zielinski er fjölhæfur miðjumaður sem hefur verið fastamaður í byrjunarliði Empoli undanfarin tímabil, þar sem hann hefur verið að spila á láni frá Udinese.

Zielinski fór með Póllandi á EM í Frakklandi en fékk lítinn spilatíma, enda aðeins 22 ára gamall. Liverpool er meðal þeirra félaga sem sýndu Zielinski áhuga í sumar.

Hann og Arkadiusz Milik eru taldir vera miklir mátar og munu eflaust ná vel saman hjá sínu nýja félagi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.