Fotbolti.net
04.08.16 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Ross McCormack til Aston Villa (Staðfest)

Ross McCormack til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt framherjann Ross McCormack frá Fulham á 12 milljónir punda.

Ross McCormack er næstdýrasti leikmaðurinn í sögu Aston Villa en einungis Darren Bent er dýrari. Hann kostaði Aston Villa 18 milljónir punda þegar hann kom frá Sunderland árið 2011.
Norwich hafði einnig áhuga á að fá McCormack í sínar raðir en Villa hafði betur í baráttunni.

Hinn 29 ára gamli McCormack kom til Fulham frá Leeds á ellefu milljónir punda árið 2011.

Síðan þá hefur McCormack skorað 38 mörk í 89 leikjum með Fulham í Championship deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.