Fotbolti.net
04.08.16 - 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Szczesny til Roma (Staðfest)

Szczesny til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma er búið að tryggja sér þjónustu pólska markvarðarins Wojciech Szczesny annað tímabilið í röð.

Szczesny kemur á láni frá Arsenal með sérstöku samningsákvæði sem gerir ítalska félaginu kleift að kaupa hann fyrir 13 milljónir punda. Roma greiðir tæplega 2 milljónir ofan á launakostnað fyrir lánið.
Szczesny var aðalmarkvörður Arsenal en missti byrjunarliðssæti sitt eftir komu David Ospina og Petr Cech.

Szczesny lék 34 deildarleiki fyrir Roma í fyrra er félagið endaði í 3. sæti og er þessi 26 ára gamli markvörður ánægður með að fara aftur til ítölsku höfuðborgarinnar.

„Ég er ánægður með að vera kominn aftur og hlakka til að byrja tímabilið,\" sagði Szczesny við Roma TV.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.