04.08.17 - 19:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Brighton fær ungan Tékka (Staðfest)

Ales Mateju er kominn til Brighton.

Mynd: Vefur Brighton

Ales Mateju er kominn til Brighton.

Mynd: Vefur Brighton
Brighton hefur staðfest kaup sín á bakverðinum unga Ales Mateju en hann kemur til félagsins frá Viktoria Plzen.
Þessi 21 árs gamli Tékki skrifaði undir samning til þriggja ára við Brighton.
Hann kveður nú Viktoria Plzen í Tékklandi sem hann hefur leikið með frá árinu 2015.
Brighton hefur nú fengið átta nýja leikmenn í sumar en þeir leika í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Þeir eiga erfitt verkefni fyrir höndum í fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni en Manchester City kemur þá í heimsókn, klukkan 16:30 á laugardaginn.