Fotbolti.net
04.08.17 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Gaston Ramirez til Sampdoria (Staðfest)

Gaston Ramirez til Sampdoria (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska liðið Sampdoria hefur keypt Gaston Ramirez frá Middlesbrough, en talið er að kaupverðið sé 11 milljónir evra.

Ramirez, sem er úrúgvæskur landsliðsmaður, spilaði 44 leiki fyrir Boro eftir að hafa komið frá Southampton.

Hann kom fyrst á láni frá Southampton, en var síðan keyptur.
Hann spilaði 26 leiki á síðasta tímabili þegar Middlesbrough féll úr deild þeirra bestu á Englandi, ensku úrvalsdeildinni.

Hann kemur til með að styrkja Sampdoria sem hefur selt nokkra af lykilmönnum sínum í sumar.

📄 Dal @Boro ecco #Ramírez: l\'uruguayano è blucerchiato ➡️ https://t.co/85VLbUepOF pic.twitter.com/04QpjdZ4Nq

— U.C. Sampdoria (@sampdoria) August 4, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.