Fotbolti.net
04.08.18 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Barcelona kaupir landsliðsmann Senegal (Staðfest)

Barcelona

Barcelona

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Barcelona hefur fest kaup á senegalska varnarmanninum Moussa Wague en hann kemur frá KAS Eupen í Belgíu.
Wague, sem er 19 ára gamall, spilaði með senegalska landsliðinu á HM í sumar. Hann kom heldur betur á óvart þar og varð yngsti afríski leikmaðurinn til að skora á HM.

Barcelona festi í gær kaup á honum en hægri bakvörðurinn mun spila með B-liði félagsins og æfa með aðalliðinu.

Wague mun gangast undir læknisskoðun á næstu dögum og skrifa undir langtímasamning við félagið.

Leikmaðurinn gekk til liðs við Eupen frá Asipre akademíunni í Katar en mikil uppbygging hefur átt sér í Katar síðustu ár. Ivan Bravo er yfir akademíunni en hann hélt ráðstefnu hér á landi og ræddi um unglingastarfið hjá Aspire. Hann starfaði áður hjá Real Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.