Fotbolti.net
04.08.18 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Mirallas lánaður til Fiorentina (Staðfest)

Mirallas á æfingu hjá Everton

Mirallas á æfingu hjá Everton

Canon

Mynd: Getty Images

Bæði Everton og Fiorentina hafa sent frá sér tilkynningu þess efnis að Kevin Mirallas muni fara á láni til Fiorentina.
Fiorentina greinir frá því í sinni tilkynningu að félagið hafi forkaupsrétt á Mirallas eftir tímabilið.

Mirallas hefur verið á mála hjá Everton frá 2012, en hlutverk Belgans hefur minnkað verulega síðustu ár, og varði hann seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Olympiakos í Grikklandi.

Ekki var búist við því að Mirallas yrði í stóru hlutverki á þessu tímabili eftir komu Richarlison.

Mirallas mun koma með reynslu inn í frekar ungt lið Fiorentina.

Fiorentina endaði í áttunda sæti Seríu A á síðasta tímabili.

#Mirallas è un calciatore della Fiorentina
Leggi il comunicato ufficiale: https://t.co/p2qQYTtxRz#NoiSiamoFirenze#InsiemeSiamoPiùForti pic.twitter.com/UPhx1kX5HC

— ACF Fiorentina (@acffiorentina) August 4, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.